|




|
Hugsaðu
sjálfstætt
Ávarp bróður Bernards í gegnum transmiðilinn Lucy
Hale, í janúarmánuði
1978.
Gott kvöld vinir.
Það er mér ánægjuefni að koma hingað til ykkar og vekja ykkur til
umhugsunar um fáein atriði sem gætu orðið ykkur til stuðnings í
jarðlífinu.
Við komum hingað í gegnum þil frá lífinu fyrir handan, eins og þið
kallið það. Ekki vegna þess að okkur langi til þess að láta dásama raddir
okkar, eða að okkur langi til þess að segja ykkur hvað þið eigið að gera
og hvað ekki. Starf okkar er, þegar við komum til ykkar, í hvaða búningi
sem er hverju sinni, að fá ykkur til þess að hugsa sjálfstætt, reyna að
koma því að í heila ykkar að veita athygli því sem er í kringum ykkur,
ekki bara samþykkja allt vegna þess að það er venja, eða að einhver
jakkafataklæddur segir ykkur fyrir verkum í smáatriðum og að þið eigið að
gera þetta og hitt, og ekki vegna þess að fyrir tvö þúsund árum gaf maður
nokkur á litlum stað í Palestínu út viss
boðorð.
Við viljum að þið gerið ykkur grein fyrir því að innan hvers ykkar
er eilífur andi. Hafið þið nokkurn tíma leitt hugann að því að vegna þess
að þið eruð eilífir andar þá voruð þið til áður en þið komuð inn í
jarðlífið, alveg á sama hátt og þið munið verða til eftir að þið yfirgefið
það? Getið þið gert ykkur grein fyrir hvað eilífðin er í raun og veru? Ein
af lífsreglum ykkar (spíritista) er “Eílíf framför er möguleg hverri sál.”
Hvað er sál? Er hún sá hluti ykkar sem er eilífur, sá hluti sem er virkur
áður en þið komið inn í jarðlíkamann, hluti andans, hluti Guðs, sá hluti
ykkar sem mun að lokum færa ykkur til samneytis við hinn Mikla
anda?
Lífið er ykkur erfitt á meðan þið eruð í jarðlíkamanum vegna þess
að þið eruð takmörkuð af eðlislögmálum jarðarinnar. Við vitum að ykkur
finnst afar oft að líf ykkar á jörðinni séu hálfgerð mistök. Það virðist
sem svo að þegar þið reynið að gera eitthvað fyrir náungann þá sé því öllu
snúið við. Stundum horfið þið í kringum ykkur og hugsið sem svo: Til hvers
er þetta allt eiginlega? Því að vera að streða þetta? Hvers vegna ætti
maður að vera að gera þetta eða hitt þegar svo margt fólk sem raun ber
vitni, hunsar algjörlega málefni andans en virðist engu að síður hafa það
alveg ágætt á jarðsviðinu og jafnvel
blómstra?
Munið þess vegna þetta: hvert og eitt ykkar, hvort sem þið eruð ung
eða gömul, sérhvert ykkar er sjálfstæður Andi, hvert ykkar er á mismunandi
stigi á framrás ykkar.
Þið skiljið í dag þróunarkenninguna í efnisheimi ykkar. Vísindamenn
ykkar hafa horft tilbaka og sýnt ykkur hvernig maðurinn þróaðist smám
saman frá því að vera apakyn sem lifði í trjánum í Afríku. Smám saman,
þróaðist hann í gegnum aldirnar, allt þar til hann loks varð maður. Það er
efnislega hliðin. En innan sérhvers lífsforms, allt frá því lægsta til
þess hæsta, frá skordýrinu sem skríður á jörðinni til illgresisins sem vex
í garðinum þínum, trjánna, fuglanna, dýranna og fiskanna, alls sem lifir,
býr Andi. Sá Andi er á þroskaferð, þroskaferð frá einhverju mjög frumstæðu
til einhvers mjög uppbyggilegs.
Ykkur mun oft finnast kringumstæðurnar vera mjög erfiðar á
þorskaferð ykkar um lífið. Þið virðist alltaf vera að lenda í meiri
vandræðum, og kannski fleirum en einhver annar. Aftur og aftur standið þið
ykkur að því að spyrja: “hvers vegna?” Af hverju þarf allt þetta að koma
fyrir mig? Hvers vegna skyldi ástvinur minn hverfa yfir til annars
lífheims? Hvers vegna missi ég barn, eiginmann, eiginkonu, bróður eða
systur, áður en þau hafa fengið tækifæri til þess að lifa lífi sínu á
jörðinni?
Ef ganga þín er erfið á jörðinni, ef þú átt í meiri erfiðleikum en
annað fólk, ef þér finnst að þú þurfir að plægja mjög erfiðan akur, þá
skaltu muna að þú ert þá aðeins þroskaðri en einhverjir aðrir og þarft því
svolítið erfiðari lexíur.
Þegar börnin ykkar fara í skóla í fyrsta sinn þá fara þau fyrst í
byrjendabekk og hefja nám sitt með því að læra að stafa. Þið munduð ekki
vænta þess að þau geti strax náð tökum á algebru eða erlendum tungumálum.
Þið vitið að barnið þarf að þroskast og vaxa. Þið viljið að það geri allt
sem í þess valdi stendur til þess að nota hæfileika sína til fulls. Þið
gerið ykkur grein fyrir að í efnisheiminum er munur á milli barna, á milli
einstaklinga. Eitt barn er kannski mun fljótar til að læra að stafa og
lesa en annað, á meðan önnur eiga ekki í neinum vandræðum með að reikna.
Sum börn geta sest niður og spilað á píanó eða eitthvað annað hljóðfæri,
og ekki verður annað séð en að þau hafi getu langt umfram það sem
árafjöldi aldurs þeirra segir til um. Ef þið eruð skynsöm þá munið þið
gera ykkur grein fyrir því að sérhvert barn á jarðsviðinu hefur sína eigin
hæfileika, gáfur og möguleika. Það eru þessi kraftar, gáfur og hæfileikar
sem þið viljið að séu þroskaðir. Ef þið eruð skynsöm þá munuð þið ekki
reyna að ýta börnunum inn á leið sem hæfir þeim ekki. Þegar kemur að lokum
skólaferils þeirra, þá munið þið sjá, ef þið eruð skynsöm, í hvaða átt
hæfileikar þeirra liggja og leiðbeina þeim í þá átt. Enn og aftur, ef þið
eruð skynsöm, þá munið þið viðurkenna þá staðreynd að sérhvert barn er
einstaklingur, alveg á sama hátt og þið eruð
einstaklingar.
Það er mikilvægt að þið færið ykkur í nyt þau tækifæri sem ykkur
eru veitt á meðan þið dveljið á jarðsviðinu. Það er mikilvægt að þið nýtið
ykkur allt það sem verður á vegi ykkar sem getur orðið til þess að þið
þroskið persónuleika ykkar, svo þið megið þroskast í Andanum. Það er
mikilvægt að þið sættið ykkur við kringumstæður lífsins, að þið reynið að
víkka huga ykkar eins og hægt er, að þið eigið samskipti við annað fólk og
takið þátt í athöfnum jarðlífsins.
Þið rekist oft á trúarreglur vítt og breitt um land ykkar þar sem
er fólk sem segir að þetta sé rangt, og það er rangt. Hver mun neita því
að eitthvað gott sé að finna í leikhúsinu, kvikmyndahúsinu eða
sjónvarpinu. Allt sem þið viðurkennið sem hluta af lífi ykkar mun einhver
fordæma. Við viljum segja ykkur að allt í lífi ykkar er mikilvægt, sérhver
upplifun í jarðlífinu er mikilvæg, hver svo sem hún er! Við viljum að þið
lítið á líf ykkar á jörðinni sem ævintýri og að þið takið viljug þátt í
því, vitandi það að þið búið yfir þeim krafti hið innra með ykkur sem þarf
til þess að yfirstíga hindranirnar, fást við erfiðleikana og ná því
takmarki sem þið ætluðuð ykkur með því að koma til jarðarinnar, þ.e. að
byggja upp persónuleika ykkar. Við biðjum ykkur ekki að gleyma Andanum,
eða snúa baki við málefnum Andaheimsins. Það sem við segjum er að þið
ættuð að gefa ykkur tíma til hugleiðslu, tengingar við Andaheiminn, að
senda út kærleikshugsanir ykkar, heilun og uppörvun til þeirra í kringum
ykkur sem þarfnast þess. Við viljum að þið gerið ykkur grein fyrir því, að
á meðan þið eruð í jarðlíkamanum, þá er almikilvægast fyrir ykkur að sætta
ykkur við kringumstæður jarðarinnar.
Þið takið á ykkur aukna ábyrgð eftir því sem þið þroskist í gegnum
lífið og vegna þess að þið berið þessa ábyrgð þá verðið þið að uppfylla
hana. Margt fólk getur snúið sér við og sagt sem svo: “Já, en hvers vegna
þarf þetta allt að koma fyrir mig?” Það er einfaldlega vegna þess að þetta
ert þú, vegna þess að það ert þú, sem einstaklingur, á vissu stigi í
þroska þínum, sem verður að sættast við kringumstæður jarðarinnar og læra
með því hvernig á að þroskast, bæði í jarðneskum og andlegum
skilningi.
Jesús frá Nazaret, kom til jarðarinnar til þess að flytja einföld
skilaboð, skilaboð um að við skyldum elska hvert
annað.
Ef þið lítið í alvöru á grunn allra trúarbragða þá munið þið komast
að því að kærleikurinn er með einum eða öðrum hætti, grundvöllur þeirra.
Þið hafið á hraðbergi setningar eins og “Guð er kærleikur.” En Guð er líka
Andi, svo Andi er kærleikur.
Það er mikilvægt að þið veitið öllum sem þið eigið samskipti við
kærleik. Ekki bara þeim sem þið hittið líkamlega heldur líka þeim sem þið
eruð í huglægu sambandi við. Þeim sem þið lesið um, ekki bara þeim sem eru
að gera það gott eða skapa sjálfum sér stórt nafn vegna þess að þeir séu
svo heilagir, heldur líka þeim sem eru að fremja svokallaða glæpi,
skemmdarvörgum, morðingjum, hryðjuverkamönnum. Þeir eru margir sem hafa
villst af leið en eru samt að hafast að vegna þess að þeir halda að þeir
séu að gera rétt. Þeir þarfnast kærleika ykkar ekki síður en þeir sem eru
að vinna góðverk. Munið að Guð er í hverjum og einum þeirra, alveg á sama
hátt og hann er í ykkur!
Ef þið leitið hins góða í fólki, ef þið komið fram eins og
sendiherrar hins góða, ef þið segið fólki vítt og breitt að það sé til
góðleiki í heiminum, þá mun “anda örvæntingarinnar” verða ýtt til
hliðar.
Við komum til ykkar annað slagið vegna þess að okkur þykir vænt um
ykkur og við reynum að umvefja kærleika okkar, ekki bara um ykkur sem eruð
hér saman komin, heldur alla þá sem eru í efnislíkama á jarðsviðinu og að
fást við verkefni jarðlífsins. Breiðið út fúslega þann kærleika hvar sem
þið farið. Sinnið þessum smáatriðum sem skipta svo miklu fyrir aðrar
sálir, bros hér og orð þar. Í hvaða formi sem það getur verið, sama hversu
smátt í sniðum, það er engu að síður mikilvægt. Það mun hafa áhrif á
viðkomandi sál jafnvel þó þið munið aldrei sjálf sjá árangur
þess.
Við skiljum þessi fáu orð
eftir hjá ykkur, gefum ykkur blessun okkar og biðjum þess að sérhvert
ykkar muni taka á móti þessum kærleika í hjarta ykkar og deila honum með
öllum þeim sem þið hittið. Þá mun jarðsvið ykkar smám saman færast fram á
við á sviði þorskans og þeir sem eru að vinna hér mun sýna hvað kærleikur
þýðir í raun og veru.
Góða nótt, og Guð blessi ykkur
öll. |